Þjónustuhönnun
Við bjóðum upp á vinnustofur eða námskeið í notendamiðuðum aðferðum, sem við sérsníðum að þínum þörfum. Hvort sem þú vilt gefa starfsfólkinu þínu tækifæri til að læra eitthvað nýtt sem er bæði gagnlegt og skemmtilegt eða þarft aðstoð við að setja upp og stýra vinnustofu þar sem markmiðið er að ná fram einhverri niðurstöðu um ákveðið mál þá getum við hannað vinnustofu sem hentar þínum þörfum. Vinnustofurnar og námskeiðin geta verið allt frá hálfum degi þar sem fókusinn er á ákveðið tól eða kynningu á hönnunarhugsun og upp í 5 daga hönnunarsprett með eftirfylgni.
Viltu vita meira?
Sendu okkur línu!
Hvað bjóðum við uppá?
Kynningu á því hvað þjónustuhönnun er
Vinnustofu, fókus á ákveðið tól
Vinnustofu, námskeið í ferlinu
Hönnunarspretti