T-02: Service Design

Við bjóðum upp á vinnustofur sem eru sniðnar að þínum þörfum í notendamiðuðum aðferðum. Hvort sem þú vilt gefa starfsfólkinu þínu tækifæri til að læra eitthvað nýtt sem er bæði gagnlegt og skemmtilegt eða þarft aðstoð við að setja upp og stýra vinnustofu þar sem markmiðið er að ná fram einhverri niðurstöðu um ákveðið mál þá getum við hannað vinnustofu sem hentar þínum þörfum. Vinnustofurnar og námskeiðin geta verið allt frá hálfum degi þar sem fókusinn er á ákveðið tól eða kynningu á hönnunarhugsun og upp í 5 daga hönnunarsprett með eftirfylgni.